|
Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands |
![]() |
||||
|
|
Heimir Pálsson Aravefur |
||||
|
Aravefur Hér er gerð tilraun til að semja vef í stað ritgerðar um eitt allra elsta rit sem þekkt er á íslensku, Íslendingabók Ara fróða. Ástæða þess að þetta birtingarform varð fyrir valinu er sá kostur sem hér býðst til að láta hljóðskrár fylgja skrifuðu efni. Jafnframt virðist höfundi það gefa skemmtilegt færi á að fylgja meginþræði eftir með ýmsu hliðarefni sem hnýsilegt geti talist. Meginviðfangsefni vefjarins er að kynna hugmynd sem með frekari útfærslu og rannsóknum kynni að gera kleift að kanna tengsl milli frásagnarstíls Ara og þess munnlega frásagnarháttar sem gera má ráð fyrir að hann hafi byggt ýmsar frásagnir sínar á. Þessu efni hafa verið gerð býsna lítil skil í því sem um Ara og verk hans hefur verið skrifað. Stíll höfundarins hefur verið afgreiddur sem þurr og fræðilegur – með fáum frávikum, eins og nefnt verður. Meginhlutar vefjarins eru tveir: Auk þess er að sjálfsögðu gerð grein fyrir heimildum og fjallað um grunnhugmynd verksins á sérstakri síðu. |
|||||