|
Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands |
![]() |
|||
|
Ritfregn birt 14. janúar 2002 |
||||
|
Bryndís Jónsdóttir Alfræði íslenskrar tungu Margmiðlunardiskur frá Lýðveldissjóði
Lýðveldissjóður og Námsgagnastofnun hafa gefið út margmiðlunardiskinn Alfræði íslenskrar tungu. Diskurinn er eitt af fjórum stórum verkum sem verkefnisstjórn Lýðveldissjóðs ýtti úr vör árið 1995 og það eina sem er á margmiðlunarformi. Ritstjórn disksins önnuðust Þórunn Blöndal og Heimir Pálsson. Diskurinn var afhentur forsætisráðherra við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember 2001. Mynd 1 - Alfræði: Táknmál og táknmálskennsla Diskurinn skiptist í þrjá hluta. Þeir eru Kynning, Alfræðin og Málslóðir. Í Kynningu er sagt frá vinnunni við diskinn, höfundar eru kynntir og verksaga rakin. Alfræðin er aðalhluti verksins; þar er að finna margvíslegan fróðleik um mál og málnotkun. Í Málslóðum er efni þríþætt. Þar eru Troðnar slóðir en í þeim er hluti Alfræðiefnisins endursagður og einfaldaður. Textinn í Troðnum slóðum er oft aðeins til stuðnings myndefni sem þar er bæði til fróðleiks og skemmtunar. Á Tímaás er að finna stiklur úr mannkynssögu, Íslandssögu og íslenskri málsögu og þriðji þáttur Málslóða er Safn hljóða og mynda en þar er mynd- og hljóðefni Alfræðigreinanna safnað saman til hægðarauka. Hljóð 1 - Upplestur úr Eglu Hvernig læra börn að tala? Hvernig skynjum við málhljóðin? Hvernig hefur íslensk tunga breyst frá landnámsöld til okkar daga eða er hún kannski óbreytt? Hvernig varð ritmálið til? Hver er uppruni íslenskra mannanafna? Þetta eru nokkrar þeirra spurninga sem finna má svör við í greinum Alfræðinnar, þar sem fremstu fræðimenn okkar fjalla á alþýðlegan hátt um mál og málfræði. Mynd 2 - Stiklur úr sögu á Tímaás Gífurlegt magn upplýsinga er að finna á diskinum, t.d. hefur alfræðihluti verksins að geyma:
Markhópur Alfræði íslenskrar tungu er m.a. fróðleiksfús almenningur; börn á mið- og unglingastigi grunnskóla, framhaldsskólanemar; nemendur í íslensku við Háskóla Íslands og kennaranemar. Mynd 3 - Troðnar slóðir: Hljóðkerfið: Hestr verður hestur Alfræði íslenskrar tungu fæst í Skólavörubúðinni v/Smiðjuveg og í bókabúðum og kostar 3900 krónur. Sértilboð fyrir kennaranema gildir í bóksölu þeirra í Kennaraháskóla Íslands. Skólar fá sérkjör hjá Námsgagnastofnun. |
||||